Fara beint í efni

Næring

Kalk

Um 99% af kalki líkamans er geymt í beinum og tönnum

Kalk er steinefni sem gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu og viðhaldi sterkra beina og tanna. Um 99% af kalki líkamans er bundið í beinum, þar sem það stuðlar að styrk þeirra og stöðugleika. Auk þess tekur kalk þátt í ýmsum mikilvægum ferlum í líkamanum, þar á meðal vöðvasamdrætti, starfsemi taugakerfisins og blóðstorknun.

Rannsóknir sýna að þegar ráðlagður dagskammtur af kalki er uppfylltur, sérstaklega samhliða nægilegu D-vítamíni, getur það stuðlað að auknum beinmassa og bættri beinþéttni. Þetta er sérstaklega mikilvægt til að viðhalda góðri beinheilsu og draga úr hættu á beinþynningu og beinbrotum síðar á ævinni.

Ráðlagður dagskammtur (RDS) af kalki

Ráðlagður dagskammtur (RDS) af kalki er það magn sem flestir þurfa daglega til að viðhalda góðri beinheilsu. Þörfin getur verið mismunandi eftir aldri.

Börn undir 6 mánaða120 mg
Börn 7-11 mánaða310 mg
Börn 1-3 ára450 mg
Börn 4-10 ára800 mg
Unglingar 11-17 ára1 150 mg
Ungmenni 18-24 ára1 000 mg
Fullorðnir 25 ára og eldri950 mg
Jógúrt í skál með berjum, valhnetum og fræjum

Hvar finnst það?

Hvaða matvæli eru rík af kalki?

Æskilegt er að fá kalk fyrst og fremst úr fæðu fremur en bætiefnum. Hér eru helstu uppsprettur kalks í fæðu:

  • Mjólk og mjólkurvörur

  • Ostar

  • Sardínur og harðfiskur

  • Tófú og aðrar sojavörur

  • Heilkorn

  • Hnetur og fræ

  • Kalkbætt jurtamjólk

  • Baunir og linsur

Meira er ekki alltaf betra

Of mikið kalk getur valdið aukinni áhættu á nýrnasteinum og kalkútfellingum í mjúkvefjum.

Hámarkskalkneysla er 2500 mg á dag, og ekki er mælt með að fara yfir það.