Innrennsli
Zoledrónsýra
Draga úr niðurbroti beina og minnka líkur á beinbrotum.
Hvernig virkar lyfið
Zoledronsýra er öflugt bisfosfónatlyf sem verkar með því að draga úr niðurbroti beina og styrkja beinbyggingu. Meðferðin getur hjálpað til við að viðhalda beinþéttni og minnka líkur á beinbrotum til lengri tíma.
Lyfjagjöf
Gefið sem innrennsli í bláæð, 5 mg, á að minnsta kosti 20–30 mínútum
Hafa skal í huga
Nýrnastarfsemi þarf að vera nægilega góð (kreatínínhreinsun ≥ 35 ml/mín).
Útiloka þarf kalk- og D-vítamínskort áður en meðferð hefst
.Mikilvægt er að drekka vel daginn sem innrennslið er gefið og daginn eftir.
Gildi D-vítamíns ætti að vera 50–75 nmol/L.
Heildarinntaka kalks ætti að vera um 800 mg á dag.
Útiloka þarf fyrirfram að fyrirhugaðar séu tannaðgerðir.
Notkun
Lyfið er gefið sem innrennsli í bláæð af heilbrigðisstarfsfólki
Aukaverkanir
20–30% fá flensulík einkenni innan 3 daga:
Bein- og vöðvaverkir
Kuldahrollur
Hiti
Þreyta
Höfuðverkur
Einkenni ganga yfirleitt til baka innan 2–3 daga.
Mikilvægt
Lyfið er gefið einu sinni á ári, yfirleitt í 3 ár, og síðan endurmetið.
Mælt er með að taka 1 g af parasetamóli sama kvöld og innrennslið er gefið og 1 g næsta morgun.
Engin frábending er gegn því að aka bíl eftir innrennslið.
Borða og drekka má eins og venjulega.