Sprauta
Teriparatide
Örvar nýmyndun beina og eykur beinþéttni.
Hvernig virkar lyfið
Teriparatide örvar nýmyndun beina með því að virkja frumur sem byggja upp bein. Meðferðin eykur beinþéttni og styrkir bein, sérstaklega hjá einstaklingum með mikla beinþynningu.
Lyfjagjöf
Gefið sem stunga undir húð einu sinni á dag, oftast í læri eða kvið.
Hafa skal í huga
Meðferðin varir í 2 ár.
Eftir lok meðferðar þarf önnur lyfjameðferð sem hindrar niðurbrot beina.
Notkun
Lyfið er oft í lyfjapenna sem auðvelt er að nota sjálfur.
Best er að taka lyfið á sama tíma dags hverju sinni.
Skipta skal um stungustaði til að forðast ertingu.
Geyma skal lyfið í kæli (2–8°C), ekki láta það frjósa.
Aukaverkanir
Algengar
Svimi eða blóðþrýstingsfall (sérstaklega í byrjun).
Aukinn hjartsláttur.
Verkir í beinum, vöðvum eða liðum.
Ógleði.
Sjaldgæfar
Aukið kalkmagn í blóði.
Roði eða erting á stungustað.
Mikilvægt
Ef gleymist að taka skammt, ekki taka tvöfaldan skammt næsta dag.
Leiðbeiningar og myndbönd
Hvernig nota á TERROSA pennann.
Á heimasíðunni terrosapatient.com er að finna íslensk myndbönd um hvernig nota á TERROSA pennann. Hægt að fara beint inn á íslensku myndböndin með því að smella hér: