Sprauta
Romosozumab
Eykur beinmyndun og dregur úr niðurbroti beina.
Hvernig virkar lyfið
Romosozumab hefur tvíþætta verkun þar sem það eykur myndun nýs beinvefs og dregur um leið úr niðurbroti beina. Þessi samverkandi áhrif geta leitt til hraðari aukningar á beinþéttni.
Lyfjagjöf
Gefið sem stunga undir húð einu sinni í mánuði. Hver skammtur samanstendur af tveimur sprautum á mismunandi stungustaði.
Hafa skal í huga
Meðferðin varir í 12 mánuði.
Eftir meðferð þarf áframhaldandi lyfjagjöf til að viðhalda áhrifum.
Geyma skal lyfið í kæli (2–8°C), ekki láta það frjósa.
Notkun
lyfið er gefið af heilbrigðisstarfsfólki
Aukaverkanir
Verkir í liðum eða beinum
Höfuðverkur
Roði eða verkur á stungustað
Mikilvægt
Ekki sleppa skammti – regluleg gjöf er mikilvæg fyrir virkni meðferðar.
Leiðbeiningar og myndbönd
Hvernig notar maður Romosozumab?
Hér er myndband á dönsku frá lyfjafyrirtækinu UCB Nordic sem sýnir hvernig á að nota lyfið Evenity® (romosozumab). Myndbandið er ætlað sjúklingum sem hafa fengið lyfið ávísað og veitir skref-fyrir-skref leiðbeiningar um notkun þess