Sprauta
Denosumab
Dregur úr niðurbroti og eykur styrk beina.
Hvernig virkar lyfið
Denosumab verkar með því að hindra boðefni sem örva niðurbrot beina. Þannig dregur lyfið úr beinmissi og stuðlar að sterkari beinum þegar það er gefið reglulega.
Lyfjagjöf
Gefið sem stunga undir húð í læri, kvið eða upphandlegg á 6 mánaða fresti.
Hafa skal í huga
Lágt kalkmagn í blóði getur komið fram, sérstaklega hjá einstaklingum með verulega skerta nýrnastarfsemi.
Einkenni lágs kalkmagns geta verið dofi, vöðvakrampar eða slappleiki.
Notkun
Sprautan er yfirleitt gefin af lækni eða hjúkrunarfræðingi.
Í sumum tilvikum geta einstaklingar eða aðstandendur lært að gefa sprautuna sjálfir í samráði við heilbrigðisstarfsfólk.
Aukaverkanir
Verkir í liðum, beinum eða vöðvum.
Mikilvægt
Mikilvægt er að missa ekki úr skammti.
Ekki má hætta meðferð skyndilega – ef meðferð er stöðvuð þarf önnur meðferð til að viðhalda beinþéttni.
Leiðbeiningar og myndbönd
Hvernig á að nota Denosumab?
Myndband sem sýnir hvernig nota á Denosumab sprautuna.